Púðrið 2k22

Sett inn 3rd Mar 2022 19:13:02 í Almennt

Skráning í Púðrið 2k22 hefst á mánudaginn 7. mars klukkan 12:20 og eru 20 !! sæti í boði. VERÐ er 15.000kr.

 

Innifalið í verði:

  • Gisting í tvær nætur
  • Rútuferð
  • Heimsókn í Kalda brugghús
  • Pylsuveisla á föstudegi
  • Pizzuveisla á laugardeginum
  • Áfengi (líka gott að taka auka ef fólk er þyrst)
  • Djamm á sjallanum

 

DAGSKRÁ

FÖSTUDAGUR 

9:30 Mæting í rútu við Tæknigarð

10:00 Brottför, stoppað í Staðarskála í hádegismat

17:00 Heimsókn í Kalda

19:00 Farið í Ytri-Vík - Koma sér fyrir, pylsur & djamm

 

LAUGARDAGUR 

9:00 VAKNA

9:30 Lagt af stað upp í fjall - þeir sem skíða ekki fá dropoff niðrí bæ

15:00 Skíðafólk sótt og skutlað í sund

15:30 Sund

17:00 Vísó

19:00 Pizzapartý á Sjallanum og djamm

01:00 Rúta heim í Ytri-Vík

 

SUNNUDAGUR 

8:00 VAKNA og ÞRÍFA

10:30 Lagt af stað upp í fjall & dropoff niðrí bæ (illa séð að vera og þunnur og beila á fjallið)

14:00 Skíðafólk sóttt

HEIMFERÐ

 

Það sem þarf að taka með:

  • Svefnpoki/sæng og koddi (þarf ekki að taka með lak)
  • Aukaáfengi
  • Morgunmatur/hádegismatur og möns (við bjóðum upp á kvöldmat)
  • Sundföt og handklæði
  • Föt til skiptana (djammföt, skíðaföt o.fl)
  • Skíði/bretti og aukadót
  • Hleðslutæki
  • Tannbursti og tannkrem