Lota

Sett inn 16th Oct 2017 15:46:44 í Vísó

Lotan mín og lotan þín <3

Lota sérhæfir sig verkfræði-, öryggis- og rekstrarráðgjöf ásamt verkefnastjórnun. Allt hljómar þetta mjög spennandi. Lotta er líka karakter í Astrid Lingdren bók, lota er nafn yfir raðir efna í lotukerfinu og Lota er víst líka borg í Chile! Þetta hlýtur allt saman að spinnast í stórskemmtilegan fyrirlestur sem við getum notið í faðmi hvors annars. Nú er einnig um meira úrval kúrufélaga að ræða því elsku dúllurnar í VÍR ætla að skella sér með. Svo við skulum sjást hress og kát, fá okkur eitthvað í svanginn og skola því niður með þeim veigum sem í boði verða.

Mæting er kl. 16:45 á Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík. Skráning byrjar kl 12:35 á miðvikudag að vanda!

Klikkið hér til að lesa ykkur meira til um Lotu!