Haustferð

Sett inn 10th Oct 2017 14:47:55 í Vísó

Halló elskurnar, það er komið að haustferð Naglanna! Á föstudaginn munum við njóta saman dásamlegs kvölds ævintýra og drykkju í faðmi hvors annars.

Mæting verður í VR-II kl. 13:30 og rútan fer af stað kl. 13:45. Ferðin kostar litlar 3000kr. og þar er innifalið skemmtun, vísindaferð hjá flottu fyrirtæki, matur og veigar yfir allan daginn. Þið þurfið að vera búin að millifæra fyrir kl. 16:00 á fimmtudaginn. Skráning byrjar á Naglasíðunni kl 12:35 á þriðjudag!

Kt. 420993-2509
Rnr. 0311-26-002233
Aur: 123-693-7754

ATH! Til að njóta kvöldsins til hins ítrasta, mælum við með að taka með föt sem hægt er að sprikla smá í og líka sundföt. Svona til að skola af sér spriklið. Síðan verður hægt að geyma þetta dót í heimastofunni ef þið viljið fara niðrí bæ.